Glóðafeykir

Glóðafeykir er í Blönduhlíðarfjallgarði. Bergtegundin er aðallega úr blágrýti.
Glóðafeykir er 990 metra hár og er voldugt baksvið þegar horft er yfir í Blönduhlíð frá Varmahlíð.

Jón biskup Arason var tekinn af lífi í Skálholti haustið 1550 ásamt sonum sínum tveimur, Ara lögmanni og séra Birni á Melstað.
Helga Sigurðardóttir, eftirlifandi kona Jóns biskups, flúði frá Hólum strax og stríðsskipin komu til landsins og með henni Guðrún Magnúsdóttir, sonardóttir hennar, í fjallið hjá Ökrum í Skagafirði, sem heitir Glóðafeykir. Þar voru þær með tjald allt til þess að skip voru sigld og nokkrir menn með þeim. Þangað var til þeirra flutt það sem að þær með þurftu.
Í Húsgilsdragi á Helga að hafa verið um sumarið, enda kemur ekki annar staður til greina við Glóðafeyki en þessi.

En hvernig er nú aðstaðan til að dyljast í fjallinu Glóðafeyki?
Glóðafeykir er hátt fjall og einkennilega myndað. Hann er skilinn frá fjöllunum í kring, og verður að ofanverðu næstum því sem þunn brík, sem sneitt er af báðum endum á. Fjallið er hlaðið upp af fjölmörgum blágrýtislögum, og er mjög torgengt. Glóðafeykir er hár, klettóttur og ógrösugur.

Símon Dalaskáld leggur Helgu Sigurðardóttur eftirfarandi erindi í munn, þegar hún yfirgaf Glóðafeyki:

Þig Glóðafeyki kveð ég vininn kæra,
þig krýni jafnan himnesk náðarsól
og sonardóttir mín hin íturmæra,
þú mér og henni veitti dularskjól
útlendu þegar undan flúðum valdi
sem ögrar minni kæru fósturslóð,
ég grátin oft í gráu vaðmálstjaldi
til guðs hef beðið saknaðsþrungnum móð.

Fróðleikur

Glóðafeykir
Glóðafeykir er í Blönduhlíðarfjallgarði. Bergtegundin er aðallega úr blágrýti. Glóðafeykir er 990 metra hár og er voldugt baksvið þegar horft er yfir...
Hárgreiðslustofa
Á Syðstu-Grund rekur Kolbrún María, ábúandi á bænum, hárgreiðslustofu. Þar geta gestir ferðaþjónustunnar pantað sér hársnyrtingu.

Upplýsingar

Syðsta-Grund - 560 Varmahlið
Sími: 453-8262
Farsími: 846-9182
Netfang: sydstagrund@gmail.com

Panta gistingu >>